Ungmennafélag Njarðvíkur þykir leitt að tilkynna það að allar æfingar Glímudeildar falla niður um óákveðinn tíma. Boðað verður til þjálfarafundar og foreldrafundar á allra næstu dögum.
Áður auglýstur aðalfundur deildarinnar er ekki löglega boðaður og verður því boðaður aftur síðar af aðalstjórn UMFN og þá á heimasíðu félagsins.
Virðingafyllst
Aðalstjórn UMFN