Njarðvík-Keflavík leikur tvö í Ljónagryfjunni í kvöld!Prenta

Körfubolti

Önnur úrslitaviðureign Njarðvíkur og Keflavíkur í Subway-deild kvenna fer fram í Ljónagryfjunni í kvöld kl. 19:15. Fyrsta viðureignin var heldur betur hjartastyrkjandi þar sem Keflavík tók 1-0 forystu eftir tvíframlengda spennuviðureign. Okkar konur ætla sér ekkert annað en að jafna einvígið í kvöld! Við mætum græn!

Miðasala er hafin á Stubbur-App en gómsæti Gryfjuborgarar og drykkir verða á boðstólunum frá kl. 18.00 í dag. Mætum tímanlega og eigum góða kvöldstund í Ljónagryfjunni.

Sérstakt „Shoutout” fyrir kvöldið fá okkar menn í fótboltanum sem lögðu Þrótt Reykjavík í gær á útivelli og hafa því unnið fyrstu þrjá leikina sína í Lengjudeildinni. Hver veit nema peyjarnir fjölmenni á pallana í kvöld. Green is good.

Áfram Njarðvík!