Æft verður mikið í sumar og verða æfingar yfir mest allan sumartímann. Körfuboltinn er orðinn heilsársíþrótt og er sumarið tíminn til að bæta sig, þá sérstaklega í einstaklingsæfingum, tækni og skotum. Farið verður vel í þessa þætti í sumar. Einnig verða styrktaræfingar tvisvar sinnum í viku allan tímann fyrir iðkendur fædda 2010 og eldri . Styrktarþjálfunin er innifalið í verðinu og er í fyrsta skipti sem boðið er uppá styrktaræfingar yfir sumartímann. Mikilvægt er að vinna í þeim þætti allt árið. Körfuboltaæfingarnar verða í umsjón Veigars Páls Alexanderssonar leikmanns Chowen University í bandaríska háskólaboltanum, Adams Eiðs Ásgeirssonar leikmann Hattar frá Egilstöðum og Hermanns Inga Harðarsonar þjálfari hjá félaginu til margra ára. Ólafur Hrafn Ólafsson styrktarþjálfari félagsins mun sjá um styrktarþjálfunina í sumar.
Skipt verður æfingunum upp í þrjú námskeið.
Æfingar verða fyrir iðkendur fædda 2005-2014. Æfingatímarnir eru unnir í
samstarfi við knattspyrnudeild félagsins svo flestir geti stundað báðar
íþróttir, samt sem áður er möguleiki á einhverri skörun vegna fjölda
árganga og tímum í íþróttahúsunum.
Skráning á sumaræfingarnar fara fram í gegnum Sportabler. Opnað verður
fyrir skráningu 30.maí. Skráninginn fer í gegnum linkinn hér að neðan.
Skráning er einnig hafin í hin árlega körfuboltaskóla en tvö námskeið
verða í sumar fyrir börn fædd 2012-2016. Skráning á námskeiðið fer fram
í gegnum póstfangið aggiogsvava@simnet.is . Skólinn er í íþróttahúsinu
við Akurskóla eins og síðustu ár. Tvö námskeið verða í boði :
13.júní-16.júní
18.júlí-21.júlí
Allar upplýsingar um námskeiðið má finna hér:
https://www.facebook.com/groups/2129821637053416
Sumaræfingar 2022
Æfingar fara fram í Ljónagryfjunni, íþróttahúsi Njarðvíkur.
*æfingatímarnir eru birtir með fyrirvara um breytingar
Sumaræfingar fyrir iðkendur fædda 2013-2014
Þessi hópur æfir þrisvar sinnum í viku.
Verð fyrir hvert námskeið: 10.000 kr
Æft verður kl. 14:30-15:30 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í
Ljónagryfjunni á öllum námskeiðum
Sumaræfingar – námskeið 1: 20.júní – 7.júlí
Sumaræfingar námskeið 2: 11.júlí – 28.júlí.
Sumaræfingar námskeið 3: 2.ágúst – 18.ágúst .
Sumaræfingar fyrir iðkendur fædda 2011-2012
Þessi hópur æfir þrisvar sinnum í viku.
Verð fyrir hvert námskeið: 10.000 kr
Æft verður kl. 12:15-13:15 mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga í
Ljónagryfjunni.
Sumaræfingar námskeið 1: 20.júní – 7.júlí
Sumaræfingar námskeið 2: 11.júlí – 28.júlí.
Sumaræfingar 3 námskeið: 2.ágúst – 18.ágúst .
Sumaræfingar fyrir iðkendur fædda 2009-2010.
Þessi hópur æfir þrisvar sinnum í viku auk þess tvisvar í viku í
styrktarþjálfun. Æft verður kl. 11:00-12:15 mánudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga í Ljónagryfjunni – styrktaræfingarnar verða á mánudögum og miðvikudögum kl 12:15, einnig í Ljónagryfjunni.
Verð fyrir hvert námskeið: 15.000 kr
Sumaræfingar 1 – 20.júní – 7.júlí
Sumaræfingar 2: 11.júlí – 28.júlí.
Sumaræfingar 3: 2.ágúst – 18.ágúst .
*æft er fyrstu vikuna á þriðjudegi vegna verslunarmannahelgi
Sumaræfingar fyrir iðkendur fædda 2005-2008.
Þessi hópur æfir þrisvar sinnum í viku auk þess tvisvar í viku í
styrktarþjálfun. Æft verður kl. 16:00-17:15 á mánudaga, þriðjudaga og
fimmtudaga í Ljónagryfjunni – styrktaræfingarnar verða á mánudögum og miðvikudögum kl 17:15, einnig í Ljónagryfjunni.
Verð fyrir hvert námskeið: 15.000 kr
Sumaræfingar 1 – 20.júní – 7.júlí
Sumaræfingar 2 : mánudagurinn 11.júlí – 28.júlí
Sumaræfingar 3 : þriðjudaginn 2.ágúst – 18.ágúst .
*æft er fyrstu vikuna á þriðjudegi vegna verslunarmannahelgi