Aðalfundur UMFN var haldinn á dögunum. Þar kom fram að fjárhagsstaða félagsins er mjög góð auk þess sem veittar voru viðurkenningar fyrir starf í þágu félagsins. Kosið var til aðalstjórnar og nefnda og var Ólafur Eyjólfsson kjörinn formaður með lófaklappi. Jenný L. Lárusdóttir kynnti uppkast af reglugerðum sem Aðalstjórn hefur verið að vinna að og munu verða teknar í gagnið á þessu ári.
Viðurkenningar.
Karfan veitti gullmerki fyrir 20 ára starf eða keppni fyrir félagið :
Ómari Kristjánssyni
Björgvin Magnússyni
Ágústi Hrafnssyni
Láru Ingimundardóttur
Bronsmerki, fyrir 10 ára starf eða keppni fyrir félagið.
Halldóru Halldórsdóttur
Knattspyrnudeildin veitti eftirtöldum viðurkenningu:
Gullmerki, fyrir 20 ára starf eða keppni fyrir félagið:
Guðmundi Sæmundssyni
Jóni Einarssyni
Silfurmerki, fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið:
Helga Arnarsyni
Bronsmerki fyrir 15 ára starf eða keppni fyrir félagið:
Haraldi Helgasyni
bronsmerki fyrir 10 ára starf við þjálfun yngri flokka félagsins
Þóri Haukssyni,
Ólafsbikarinn 2015
Ólafur Thordersen afhenti Ólafsbikarinn fyrir árið 2015
Halldóru Halldórsdóttur, sem er í unglingaráði körfuknattleiksdildar UMFN
Halldóra eða Dóra eins og hún er ávallt kölluð hefur unnið gríðarlega gott starf fyrir unglingaráðið þar sem hún hefur yfirumsjón með “sjoppunni” í íþróttahúsinu. Þar er hún á öllum leikjum UMFN sem og þegar helgarmót eru í húsinu og tekur einnig þátt í annarri starfsemi unglingaráðsins.
Hún er fyrirmynd í sjálfboðaliðastarfi, og vel að þessari viðurkenningu komin.