Æfingataflan hefur aðeins verið uppfærð, það voru nokkrir helgartímar sem voru ekki rétt settir inn.
Nú hefur það verið lagað. Skráning er í fullu gangi og fer fram efst á síðunni ” skráning iðkenda” .
Æfingar hefjast mánudaginn 24. ágúst. Taflan er kynnt með fyrirvara um breytingar fram til 10. september.
Nú hefjast æfingar með sérstökum hætti vegna sóttvarna sem gilda í landinu. Vanda verður mjög til verka og allir taki þátt saman í að gera þetta rétt. Mikilvægt er að mæta ekki of snemma á æfingar því ekki er hægt að hleypa inní salinn fyrr en hópurinn á undan er farinn út.
Foreldrar eru beðnir að vinsamlegast ekki fara inní húsin ef iðkendum er skutlað eða þeir sóttir á æfingar.