Leikstjórnandinn Björk Gunnarsdóttir hefur framlengt við Njarðvík til næstu tveggja ára. Björk er óðar að skipa sér í sveit á meðal sterkustu leikstjórnenda landsins og því mikið ánægjuefni fyrir okkur Njarðvíkinga að njóta krafta Bjarkar á næstunni.
Björk eins og flestum er vel kunnugt er græn í gegn en þegar hafa stöllur hennar Karen Dögg, Soffía Rún, Júlía Scheving og Linda Þórdís framlengt við félagið.
Njarðvíkurliðið missti naumlega af sæti í úrslitakeppninni á síðustu leiktíð og því ekki úr vegi að gera enn betur á komandi leiktíð enda mikill og góður hugur í hópnum.
Mynd/ SBS: Björk Gunnarsdóttir var með 6,4 stig, 4 fráköst og 4,4 stoðsendingar að meðaltali í leik á síðasta tímabili.
#ÁframNjarðvík
#EnterTheLion