Frábær leikmaður og góður drengur: Dwayne áfram í NjarðvíkPrenta

Körfubolti

Dwayne Lautier-Oungleye hefur framlengt við Njarðvík og því væntanlegur aftur í Njarðvíkurbúning á komandi tímabili í Bónus-deildinni. Eins og mörgum er kunnugt var Dwayne einn af bestu leikmönnum deildarinnar á síðasta tímabili.

Dwayne kom um miðbik síðasta tímabils og setti fljótlega sterkan svip á leik liðsins og varð á skömmum tíma einn öflugast leikmaður Njarðvíkurliðsins. Félagið bindur miklar vonir við Dwayne á komandi leiktíð þar sem stuðningsmenn geta komið og fylgst með kappanum í Stapagryfjunni sem verður tilbúin von bráðar.

„Við lögðum mikla á áherslu á að fá Dwayne aftur til okkar enda sýndi hann og sannaði vel á síðasta tímabili hvers megnugur hann er. Þetta er frábær leikmaður og góður drengur og mun rífa áfram metnaðinn í klúbbnum okkar,” sagði Halldór Karlsson formaður Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur.