Njarðvíkingurinn, Freysteinn Ingi Guðnason, er til reynslu hjá sænska úrvalsdeildar félaginu IFK Norrköping þessa dagana.
IFK Norrköping er sannkallað Íslendingafélag enda fjölmargir Íslendingar leikið með félaginu í gegnum tíðina, og m.a. þjálfari Njarðvíkurliðsins, Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Auk þess sem Njarðvíkingurinn, Arnór Ingvi Traustason, er á mála hjá félaginu um þessar mundir. Freysteinn er ásamt Jónatani Guðna Arnarssyni, félaga sínum úr yngri landsliðum Íslands og leikmanni Fjölnis á reynslu hjá Norköpping þar sem þeir hafa æft með bæði aðalliði félagsins auk akademíunnar.
Freysteinn hefur þrátt fyrir mjög ungan aldur leikið alls 41 leiki fyrir meistaraflokks Njarðvíkur og spilaði 19 leiki í Lengjudeildinni á liðnu tímabili þar sem Njarðvíkurliðið jafnaði sinn besta árangur í sögunni.
Knattspyrnudeildin óskar Freysteini til hamingju með tækifærið hjá IFK Norrköping!