8. flokkur kvenna A liðið spilaði 4 leiki þessa helgina þær skiluðu fullu húsi 4 sigrar.
8. flokkur kvenna B-lið lék í Smáranum í Kópavogi um helgina.
Andstæðingarnir voru Haukar, Breiðablik og Fjölnir. Fyrst var það leikur við Haukana. Var hann jafn og skemmtilegur. Náðu Njarðvíkurstúlkurnar 4 stiga forskoti í öðrum leikhluta eftir að hafa ekki skorað stig í þeim fyrsta. Haukar jöfnuðu leika í þriðja leikhluta og var staðan eftir þrjá 15-16 fyrir okkar stúlkur. Fjórði leikhluti var æsispennandi og skipst var á forystu fram á síðustu mínútu en svo fóru leikar að Haukar unnu tveggja stiga sigur 26-24. Svekkjandi ósigur en fjölmargir jákvæðir hlutir í leik stúlknanna.
Annar leikurinn var gegn heimamönnum í Breiðablik og eftir þrjá leikhluta var staðan 22-19 fyrir Blikum. Blikastúlkur skoruðu síðan 8 fyrstu stigin í fjórða leikhluta og sigldu sigrinum örugglega í höfn, 34-27, þótt ekki væru allir leikmenn (eða þjálfari) sáttir við dómgæsluna í þessum síðasta leikhluta. Síðasti leikurinn var gegn Fjölnisstúlkum sem voru bara með 6 leikmenn á skýrslu. Skammt er frá því að segja að stelpurnar sýndu flotta einbeitingu og kraft og sigruðu örugglega 41-20.
Stúlkurnar í B-liðinu sýndu að æfingar siðustu vikna hafa skilað sér í betri varnarvinnu og meiri ákefð og krafti almennt. Sóknarleikurinn gekk stundum stirðlega en mun færri tapaðir boltar en áður og oft sáust fallegar sendingar sem gáfu körfur. Ekki var þó laust við að hlaupastingir og þreyta gerðu vart við sig og við þurfum að halda áfram að bæta líkamlega getu okkar stúlkna áfram.
Þjálfarar 8. flokks kvenna eru Bylgja Sverrisdóttir og Jóhannes A. Kristbjörnsson.