Framundan er Heilsu- og forvarnarvika í Reykjanesbæ vikuna 3.-9.október þar sem fjöldi heilsutengdra viðburða verða í boði fyrir bæjarbúa á öllum aldri.
Markmiðið með Heilsu- og forvarnarvikunni er að draga úr þeim áhættuþáttum sem einstaklingurinn getur staðið frammi fyrir á lífsleiðinni ásamt því að hlúa að verndandi lifnaðarháttum með þátttöku allra bæjarbúa.
Fjölbreytt dagskrá verður alla vikuna og ýmis tilboð í gangi hjá fyrirtækjum og stofnunum Reykjanesbæjar. Meðal þess sem er á dagskrá í Heilsu- og forvarnarvikunni:
- Heilsufyrirlestur með Ebbu Guðný Guðmundsdóttur mánudaginn 3.október kl. 20-21 í Íþróttaakademíunni um næringu, matarsóun og umhverfisvernd.
- Rafrænn fyrirlestur um svefn með Einari Trausta Einarssyni sálfræðingi þar sem hann fer yfir sturlaðar staðreyndir um svefn.
- Heilsufarsmælingar á Bókasafni Reykjanesbæjar
- Krakka jóga og Aqua jóga
- Frítt er í sund föstudaginn 7.október í Vatnaveröld.
- Íþróttafélögin munu bjóða upp á ókeypis æfingar og vinaviku.
Þar að auki eru leikskólar, skólar og Fjörheimar með fjölbreytta dagskrá í boði fyrir börn og ungmenni alla vikuna. Líkamsræktarstöðvar verða með ýmis tilboð í gangi og Janus Heilsuefling verður með viðburði fyrir eldri borgara.
Við getum því öll fundið okkur hreyfingu við hæfi og nýtt okkur fjölda heilsueflandi viðburði þessa vikuna fyrir bætta heilsu.