Heimir skoðar aðstæður í ÁstralíuPrenta

Körfubolti

Heimir Gamalíel Helgason er núna staddur í Ástralíu þar sem hann skoðar aðstæður í höfuðborginni Canberra. Heimir hefur fengið boð um að æfa með NBA Global Academy liðinu í borginni.

Helgi Már Helgason faðir Heimis er með honum úti en ef Heimir ákveður að þiggja boðið þá er um tveggja ára verkefni að ræða. Gríðarlega spennandi tækifæri hér á ferð og það er ljóst að það verður ánægjulegt að fylgjast með Heimi og verkefnum hans í framtíðinni.

Heimir er nýútskrifaður úr 10. bekk og hefur þegar vakið verðskuldaða athygli fyrir utan landsteinanna. Körfuknattleiksdeild Njarðvíkur er einkar stolt af þessum flotta fulltrúa.

Nánar um NBA Academy