HM í lyftingum: Fylgist með breytingum á AblerPrenta

Körfubolti

Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum fer fram í Ljónagryfjunni 11.-16. nóvember. Vegna undirbúnings verða ekki æfingar í Ljónagryfjunni 6.-16. nóvember næstkomandi. Körfuboltaæfingar i Ljónagryfjunni verða færðar til á meðan HM stendur en þjálfarar í hverjum hópi munu uppfæra æfingar sinna hópa inni í Abler.

Við hvetjum iðkendur og forráðamenn að fylgjast vel með þessum breytingum og setja sig í samband við þjálfarana í sínum hópum ef eitthvað er óskýrt. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á Loga Gunnarsson yfirþjálfara á logi@umfn.is

Við biðjumst velvirðingar á þessu raski á starfseminni en fögnum því um leið að fá jafn stórt og viðamikið lyftingamót inn í klúbbinn og aðstöðuna okkar og óskum félögum okkar hjá Massa velgengni við framkvæmdina. Að þessu sögðu bendum við einnig á að sjálfboðaliða vantar til starfa við mótið og hvetjum við félagsmenn til að gefa sig fram – nánar um það hér.