Vali á íþróttafólki UMFN fór fram í Stapa í Hljómahöll sunnudaginn 21. janúar með stórri og glæsilegri athöfn. Í ár var þetta með breyttu sniði og heppnaðist það vel. En Haldið var sameginlegt hóf samhliða Keflavíkur og vali á íþróttafólki Reykjanesbæjar.
Ungmennafélag Njarðvíkur verðlaunar alla þá sem hafa staðið sig framúrskarandi vel fyrir félagið og þykja fremst í sinni íþróttagrein. Hver deild valdi innbyrðis það íþróttafólk sem stóðu sig best í sinni grein á árinu og úr þeim var valið íþróttafólk UMFN 2023. Við erum afar stolt af því að eiga mikið af framúrskarandi íþróttafólki.
Aðalstjórn UMFN óskar þessu glæsilega fólki innilega til hamingju.
Þríþrautarkona: Heba Maren Sigurpálsdóttir
Þríþrautamaður: Elvar Þór Ólafsson
Knattspyrnumaður: Gísli Martin Sigurðsson
Körfuknattleikskona: Erna Hákonardóttir
Körfuknattleiksmaður: Mario Matasovic
Kraftlyftingakona: Elsa Pálsdóttir
Kraftlyftingamaður: Hörður Birkisson
Lyftingakona: Katla Björk Ketilsdóttir
Sundkona: Ástrós Lovísa Hauksdóttir
Sundmaður: Guðmundur Leo Rafnsson
Íþróttafólk UMFN 2023
Íþróttamaður UMFN 2023: Guðmundur Leo Rafnsson
Íþróttakona UMFN 2023: Erna Hákonardóttir
Hér er frétt frá víkurfréttum: https://www.vf.is/ithrottir/ithrottafolk-reykjanesbaejar-2023