Í kvöld 27 desember var haldin hin árlega uppskeruhátíð UMFN . Þetta kvöld er tileinkað öllum sem stunda íþróttir hjá UMFN og verðlaunar alla þá sem standið hafa sig afar vel fyrir félagið og þykja fremst í sinni íþróttagrein. Hver deild valdi innbyrðis eina konu og einn karl sem stóðu sig best í sinni grein á árinu og úr þeim var valið íþróttafólk UMFN 2018. Í ár voru margir framúrskarandi en aðeins þau tvö sem hver grein valdi eiga möguleika á því að vera valið íþróttafólk 2018. UMFN er afar heppið að eiga mikið af framúrskarandi íþróttafólki í nánast öllum greinum í íslensku íþróttalífi og félagið stækkar með hverju ári þökk sé ykkur hvort sem þið eruð stuðningsmenn, sjálfboðaliðar, iðkendur, foreldrar eða þjálfarar þið spilið öll mikilvægt hlutverk og gerið félagið okkar betra.
Hér eru verðlaunahafarnir úr hverri grein
fyrir Körfuknattleiksdeild:
Maciej Baginski
Vilborg Jónsdóttir
Fyrir Júdódeild: glíma
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Bjarni Darri Sigfússon
Fyrir Júdódeild: júdó
Ingólfur Rögnvaldsson
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Fyrir Sunddeild:
Eydís Ósk Kolbeinsdóttir
Fannar Snævar Hauksson
Fyrir Knattspyrnudeild:
Magnús Þór Magnússon
Fyrir Þríþrautardeild
Guðlaug Sveinsdóttir
Tomasz Bogdansson Trojanowski
Fyrir Kraftlyftingardeild MASSI:
Halldór Jens Vilhjálmsson
Íris Rut Jónsdóttir
Fyrir Ólympískar lyftingar MASSI:
Katla Björk Ketilsdóttir
Emil Ragnar Ægisson
Íþróttafólk UMFN árið 2018
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Bjarni Darri Sigfússon
Fyrir hönd UMFN vill ég óska verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og einnig hvetja alla þá sem ekki fengu verðlaun í ár að gefast aldrei upp heldur leggja harðar á sig og koma ennþá sterkari inn í nýtt ár.
Ólafur Eyjólfsson
Formaður UMFN