Landsmótið fór fram í Hveragerði um helgina og voru um 30 keppendur frá Reykjanesbæ, sem tóku þátt í hinum ýmsu greinum.
Gott hljóð var í fólkinu í blíðunni á laugardeginum, eftir frekar blautan föstudag.
Myndin er af vinningshöfum í pönnukökubakstri og varð Eygló Alexandersdóttir í þriðja sæti.
Óskum öllum til hamingju sem unnu sem og öllum sem tóku þátt.
Sjá fleiri myndir og úrslit á vef UMFÍ umfi.is