Leikur 3: Grindavík-Njarðvík í Smáranum í kvöldPrenta

Körfubolti

Njarðvík mætir Grindavík í þriðja undanúrslitaleik liðanna í Subway-deild kvenna í kvöld kl. 19.15 í Smáranum í Kópavogi. Ljónynjur leiða einvígið 2-0 og geta með sigri í kvöld tryggt sér farseðilinn í úrslit deildarinnar!

Njarðvík vann fyrsta leikinn 79-83 í Smáranum og annan leikinn 66-58 í Ljónagryfjunni. Nú mætum við græn í Smárann og styðjum okkar konur í baráttunni um sæti í úrslitum.

Leikur kvöldsins verður í beinni útsendingu hjá Stöð2 Sport 5 en við hvetjum alla Njarðvíkinga til að gera sér skemmtilega ferð í Smárann og styðja Njarðvík.

Grindvíkingar taka á móti gestum frá 17.45 þar sem verður hægt að gæða sér á borgurum og drykkjum og þá verður frítt á völlinn fyrir 15 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.