Ljónin á leið til GrindavíkurPrenta

Körfubolti

Njarðvík mætir Grindavík í lokaleik 16. umferðar Subwaydeildar karla í kvöld. Leikurinn hefst kl. 20:15 í HS-Orku Höllinni í Grindavík. Fyrir leikinn í kvöld eru grænir í 3. sæti deildarinnar með 22 stig en Grindavík í 8. sæti með 14. stig. Leikur kvöldsins er í beinni á Stöð 2 Sport.

Í fyrri viðureign tímabilsins hafði Grindavík betur í Ljónagryfjunni svo okkar menn eiga harma að hefna. Við skorum á Njarðvíkinga að fjölmenna enda er baráttan um deildarmeistaratitilinn galopin og hvert stig núna þyngdar sinnar virði í gulli.

Með leik kvöldsins þá lítur restin af deildarkeppninni svona út hjá okkar mönnum. Alls 14 stig í boði:

  1. febrúar: Grindavík – Njarðvík
    16. febrúar: Njarðvík – Breiðablik
    6. mars: Haukar – Njarðvík
    9. mars: Njarðvík – Þór Þorlákshöfn
    16. mars: KR – Njarðvík
    24. mars: Njarðvík – Valur
    30. mars: Keflavík – Njarðvík

Staðan í deildinni