Ljónynjur mæta Haukum á konudaginnPrenta

Körfubolti

Til hamingju með daginn konur nær og fjær. Viðeigandi að hefja keppni á ný í Subwaydeild kvenna á sjálfan konudaginn og það með heilli umferð. Ljónynjurnar frá Njarðvík halda til Hafnarfjarðar í kvöld og mæta þar bikarmeisturum Hauka kl. 20:15 í Ólafssal.

Eins og flestir muna þá mættust þessi lið um Íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð og því von á alvöru glímu í kvöld. Við þurfum Ljónahjörðina á pallana í Hafnarfirði til að styðja okkar konur í baráttunni um tvö mikilvæg stig.

Þegar þetta er ritað er Njarðvík í 4. sæti deildarinnar með 22 stig en Haukar í 3. sæti með 3 stig og alls 18 stig eftir í pottinum svo það getur margt enn breyst í deildinni.

Leikur kvöldsins hefst kl. 20:15 eins og áður segir og verður í beinni útsendingu hjá Stöð 2 Sport og í lifandi tölfræði á vef KKÍ.

Leikir kvöldsins

18:15 Keflavík – Grindavík
19:15 Valur – Fjölnir
20:15 Haukar – Njarðvík
20:15 ÍR – Breiðablik

Staðan í deildinni