Næsta tímabil 2024-25
Byrjun tímabils – Innritun – Prufuæfngar
2024-2025
Sælir kæru foreldrar.
Nú er nýtt sundtímabil að hefjast og innritun hefst 19. ágúst.
Kæru foreldrar og sundmenn nú er tímabilið loksins að fara af stað. Við gátum ekki gefið neitt út fyrr en við náðum að ráða þjálfara í allar þær laugar sem við höldum úti æfingum. En nú er þetta að skýrast. Æfingatöflur fyrir alla hópa birtast á morgun og opnað verður fyrir skráningu á Sportabler eftir helgi.
Starfið fer síðan af stað af fullum krafti hjá öllum hópum á þessum dagsetningum.
Afrekshópur og Framtíðarhópur fóru af stað 29. júlí.
Æfingar hjá Háhyrningum hefjast 19. ágúst.
Æfingar hjá öllum yngri hópum hefjast 28. ágúst.
Ef þú hefur áhuga á að vera í okkar frábæra sundliði þá finnur þú upplýsingar um gjaldskrána, æfingartöflur og æfingahópana inn á heimasíðum keflavik.is/sund og umfn/sund.
Allir sundmenn verða innrita sig og ganga frá gjöldum fyrir tímabilið. Hægt er að dreifa greiðslum og nota hvatagreiðslur fyrir börn á aldrinum 4-18 ára.
https://www.sportabler.com/shop/sundradirb/sund
Nýir sundmenn mæta á prufuæfingu í Vatnaveröld þar sem þjálfari metur hvaða hópur hentar best hverjum og einum.
Nýir sundmenn mæta á prufuæfingu í Vatnaveröld mánudaginn 19. ágúst kl. 17:30. Þar metur Jóna Helena þjálfari hvaða hópur hentar best hverjum og einum.
Annars verða prufuæfingar í vetur eftir samkomulagi og fara fram í Vatnaveröld
Hafið samband við Jónu Helenu þjálfara, S: 849-0222 netfang: jonahelena@gmail.com
Silungar 4 – 5 ára og Laxar 6 ára raðast sjálfkrafa eftir aldri.
Í hópa frá Sprettfiskum og uppúr er raðað eftir getu.
Eingöngu nýir meðlimir fara á prufuæfingu.
Aðrir sundmenn tilheyra áfram þeim hópi sem þeir eru í þangað til þeir fá boð um tilfærslu.
Gjaldkerar deildarinnar veitir upplýsingar um skráningar og öllu sem því við kemur.
Gjaldkeri Sunddeildar UMFN er Guðrún Pálsdóttir
GSM: 698 5482 Netfang: gup@hi.is