Njarðvík tekur á móti Blikum í kvöldPrenta

Körfubolti

Njarðvík mætir Breiðablik í Subway-deild kvenna í Ljónagryfjunni í kvöld. Leikurinn hefst kl. 19:15 en öll 5. umferð fer fram í kvöld. Njarðvík er í 2.-3. sæti deildarinnar með 6 stig eins og Haukar en Blikar í 6. sæti með 2 stig.

Eini sigur Blika til þessa í deildinni kom gegn Grindavík í þriðju umferð en eini tapleikur okkar kvenna kom gegn Keflavík í fyrstu umferð. Við hvetjum alla Njarðvíkinga til að mæta á völlinn í kvöld og styðja Njarðvík í baráttunni um tvö mikilvæg stig. Iðkendur í minnibolta 11 ára kvenna munu svo bregða á leik í hálfleik og sýna listir sínar undir stjórn þjálfara.

Allir leikir kvöldsins í Subway-deild kvenna:

18:15 Grindavík – Valur
19:15 Njarðvík – Breiðablik
19:15 Keflavík – ÍR
20:15 Fjölnir – Haukar

#ÁframNjarðvík