Körfuknattleiksunnendur verða GAZ-lýstir á fimmtudagskvöld þegar Njarðvík tekur á móti Val í fimmtu umferð Bónus-deildar karla. Leikurinn hefst kl. 19:15 og Ljónahjörðin hvött til að mæta græn og með læti! Brakandi ferskir borgarar frá kl. 17.00 svo mætið með matarlystina!
Stöð 2 Sport verður með skiptiborðið í gangi en viðureign Njarðvíkur og Vals verður í beinni á Bónusdeildar rásinni hjá Stöð 2 Sport þar sem Pavel Ermolinskij ásamt góðum gesti þræðir áhorfendur í gegnum leikinn í áðurnefndri GAZ-lýsingu.
Eftir fyrstu fjórar umferðirnar er Njarðvík í 2.-5. sæti deildarinnar með 6 stig en Valur í 6.-8. sæti með 4 stig. Ljónin hafa unnið síðustu þrjá leiki en Valsmenn síðustu tvo.
Hlökkum til að taka á móti ykkur í IceMar-höllinni og eiga saman skemmtilegan Hrekkjavökuleik. Allir að mæta – áfram Njarðvík!