Njarðvíkingar Íslandsmeistarar í minibolta 10 ára stúlkna!Prenta

Körfubolti

Úrslit í minibolta 10 ára stúlkna fóru fram í Ólafssal í Hafnarfirði um helgina þar sem Njarðvíkurstúlkur urðu Íslandsmeistarar! Njarðvík var með tvö lið, A og B, í A-riðli á lokamótinu. B-liðið var að leika í fyrsta sinn í A-riðli og höfðu tvo sigra í fimm leikjum. A-liðið vann alla leiki helgarinnar og varð Íslandsmeistari.

Reyndar ber að geta þess að A-liðið vann alla sína leiki í vetur og fóru því taplausar í gegnum tímabilið. Frábær árangur hjá þessum efnilegu stelpum. „Framtíðin er björt hjá þessum stelpum og Njarðvík,” sagði Kristjana Jónsdóttir þjálfari liðanna en Kristjana og Bylgja Sverrisdóttir þjálfa saman minibolta 10 og 11 ára stúlkna í Njarðvík.

Efri mynd er Íslandsmeistaralið Njarðvíkur en á þeirri neðri er B-liðið sem vann tvo af fimm leikjum sínum í A-riðli um helgina.