Kynningarfundur Bónus-deilda karla og kvenna fyrir tímabilið 2024-2025 var haldinn í Reykjavík í dag. Þar voru spár fyrir komandi tímabil birtar þar sem kvennaliði Njarðvíkur var spáð 6. sæti í deildarkeppninni og karlaliðinu 8. sæti.
Á fundinum var Keflavík spáð deildarmeistaratitlinum kvennamegin en Valsmönnum karlamegin. Ljóst er að Stöð 2 Sport heldur áfram að spýta í lófana varðandi framleiðslu á körfuboltaefni á Stöð 2 Sport. Hermann Hauksson snýr aftur á skjáinn og þá verður Pavel Ermolinski einnig á meðal þeirra sem gera körfuboltavetrinum skil.
Nú er röðin komin að okkur Njarðvíkingum að sanna að enginn er spámaður í eigin föðurlandi. Áfram Njarðvík!
Myndband af fundinum að neðan.
Nánar um blaðamannafund KKÍ og Bónus-deildinna hér