Fjöldi ungra og efnilegra leikmanna samdi við karla- og kvennalið Njarðvíkur á dögunum. Óhætt er að segja að Njarðvík sé duglegt við að fjárfesta í framtíðinni með öflugu yngri flokka starfi þar sem leikmenn fá góðan undirbúning fyrir átökin í elstu yngri flokkum og meistaraflokkum félagsins.
Í meistaraflokki kvenna framlengdu eftirfarandi leikmenn samninga sína við félagið:
Andrea Rán Davíðsdóttir
Elfa Falsdóttir
Eva María Lúðvíksdóttir
Katrín Freyja Ólafsdóttir
Sara Mist Sumarliðadóttir
Vilborg Jónsdóttir
Júlía Scheving
Þuríður Birna Björnsdóttir Debes
Í meistaraflokki karla framlengdu eftirfarandi leikmenn samninga sína við félagið:
Bergvin Einir Stefánsson
Eyþór Einarsson
Gunnar Már Sigmundsson
Guðjón Karl Halldórsson
Hermann Ingi Harðarson
Rafn Edgar Sigmarsson
Róbert Sean Birmingham
Veigar Páll Alexandersson