Enn og aftur tóku nokkrir félagar úr 3N þátt í viðburði og nú var það Opna Íslenska Garpasundmótið sem fór fram um helgina 4-5 maí í 25M Ásvallalaug í Hafnarfirði.
Enn og aftur vann Guðbjörg Jónsdóttir til verðlauna og nú var það gull í 800M skriðsundi kvenna á tíma 16.50.
Borgar Þór Bragasona vann til gullverðlauna í 200M skriðsundi karla á tímanum 2.32. og silfur í
50M skriðsundi á 28.70.
Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir keppti í 5 greinum og hafði á brott með sér brons í þeim öllum. Einnig tók hópurinn þátt í boðsundi og sendi 3 hópa, karlahóp og kvennahóp í 4x50m skrið og einn blandaðan hóp í 4x50m fjórsund og gekk þeim ágætlega.
Glæsilegur árangur hjá þessum félögum okkar, sem nú í fyrsta sinn tók þátt sem hópur í garpasundi Sundsambands Íslands.
Ljósmyndir frá mótinu er hér að finna: