Í dag mánudaginn 5. júní var fyrirhugað að sumaræfingadagskrá Körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur myndi hefjast. Vegna verkfallsaðgerða verður Ljónagryfjan lokuð og því engar Sumaræfingar í dag. Barna- og unglingaráð vonast til þess að verkfallsviðræður taki fljótt af og hægt verði að opna húsið á nýjan leik.
Eins og sakir standa verða ekki æfingar í dag og tilkynningar munu berast til iðkenda á Sportabler hvenær hægt verði að æfa. Samband íslenskra sveitarfélaga og BSRB slitu fundi í nótt en verkföllin ná m.a. til starfsfólks í leikskólum, sundlaugum, íþróttamannvirkjum, þjónustumiðstöðvum, bæjarskrifstofum, áhaldahúsum og höfnum.
Við biðjumst velvirðingar á þeim röskunum og óþægindum sem þetta kann að valda og vonumst til að sáttir náist í deilunni sem fyrst. Við munum ganga úr skugga um að æfingamagn hvers námskeiðs náist hjá iðkendum og því getum við fært námskeiðið um þá daga sem dett út aftar í júlímánuð ef verkfall dregst ekki of mikið á langinn en við fylgjumst grannt með gangi mála.