Tindastóll-Njarðvík í Síkinu í kvöldPrenta

Körfubolti

Njarðvík og Tindastóll mætast í sínum öðrum undanúrslitaleik í Subwaydeild karla í kvöld í Síkinu á Sauðárkróki. Leikurinn hefst kl. 19:15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Stólarnir leiða einvígið 0-1 eftir að hafa staðið í ljósum logum í fyrsta leik þar sem allt fór niður hjá gestunum. Við væntum þess að okkar menn kvitti fyrir sig í kvöld!

Það verður nóg við að vera á Króknum í dag en dagskráin hjá heimamönnum hefst laust eftir klukkan þrjú í dag og óhætt að segja að það verði læti í Síkinu. Því er mikilvægt fyrir Njarðvíkinga að fjölmenna í grænu og láta í sér heyra.

Áfram Njarðvík