Undanúrslit kvenna hefjast í dag!Prenta

Körfubolti

Í kvöld hefst viðureign Njarðvíkur og Grindavíkur í undanúrslitum Subway-deildar kvenna. Grindavík er með heimaleikjaréttinn í seríunni og því fer fyrsti leikurinn fram í Smáranum í Kópavogi kl. 20.00 í kvöld.

Eins og áður hefur komið fram hjá okkur þá er þetta í fyrsta sinn sem Njarðvík og Grindavík mætast í úrslitakeppni úrvalsdeildar og það er von á svakalegri seríu. Tryggið ykkur miða á Stubbur-app og þá verður hægt að gæða sér á hamborgurum frá kl. 18.30.

Við mætum – áfram Njarðvík!

#FyrirFánann