Ungverjaland-Ísland: Gef allt sem ég get í þessum leikPrenta

Körfubolti

Isabella Ósk Sigurðardóttir leikmaður okkar Njarðvíkinga er núna stödd í Ungverjalandi með íslenska landsliðinu. Ísland mætir Ungverjalandi í dag kl. 16.00 að íslenskum tíma. Heimasíðan náði tali af Isabellu ytra.

„Stemningin í hópnum er bara rosa góð, æfingar hafa gengið vel og erum við allar tilbúnar í leikinn,” sagði Isabella við umfn.is. „Ég er bara mjög spennt fyrir leiknum, tók auðvitað ekki þátt í fyrri leiknum á móti þeim vegna meiðsla þannig ég mun klárlega gefa allt sem ég get í þessum leik. Við ætlum auðvitað bara mæta með þvílíkan kraft og baráttu, ég held að í svona leik sé ekkert annað í boði,” sagði Isabella en verkefni dagsins er mikil áskorun fyrir íslenska liðið.

Leikið er í DVTK-höllinni í Miskolc og verður leikurinn í beinni á RÚV kl. 16.00.

Nánar hér á heimasíðu KKÍ.