Veigar Páll Alexandersson hefur verið valinn í lokahóp U20 ára landsliðsins sem spilar dagana 20.- 23. júlí í Tallinn í Eistland. Leikið er gegn Svíum, Finnum og svo heimamönnum í Eistlandi. Keppnin er verkefni sem var frestað síðasta sumar vegna Covid19. Flogið verður út 19. júlí en sem fyrr segir var ekkert landsliðsverkefni í fyrra. Veigar hefur verið viðloðandi yngri landslið allt frá því í U16 en kappinn lék einnig með U18 landsliðinu á sínum tíma og óhætt að segja að ekki vantar uppá metnaðinn hjá Veigari og gríðarlega góð fyrirmynd með skýr markmið fyrir okkar yngri kynslóð.
Til hamingju Veigar Páll!!