Kkd. UMFN samdi við tvo unga og upprennandi körfuknattleiksmenn nú í vikunni. Veigar Páll Alexandersson er annar af þeim tveim ungu leikmönnum en eins og flestir vita er Veigar Páll uppalinn Njarðvíkingur og svo sannarlega framtíðarefni í meistaraflokkinn. Veigar fékk smjörþefinn af meistarflokki á síðasta tímabili aðeins 16 ára gamall. Veigar hefur leikið nánast sleitulaust í yngri landsliðum frá því hann hafði aldur til og miðað við þá vinnusemi sem drengurinn lætur af sér verður hann viðloðandi landsliðin á komandi árum og stefnir í hörku leikmann!
Arnór Sveinsson er svo 18 ára gamall leikmaður sem kom til Njarðvíkur á miðju síðasta tímabili úr Keflavík en Arnór er uppalinn í herbúðum Keflvíkinga. Arnór stóð sig gríðarlega vel með unglingaflokki á lokahluta síðasta tímabils og var stór hluti er liðið varð íslandsmeistari, en kappinn setti t.a.m.niður 23 stig í undanúrslita leiknum. Arnór hefur upp yngri flokka verið einn besti leikmaður í sínum aldursflokki og líkt og Veigar verið í yngri landsliðum. Þess má geta að faðir Arnórs spilaði með Njarðvík á sínum tíma og því ekki langt að sækja þá hæfileika sem hann býr yfir. Arnór hefur stimplað sig rækilega inn í Ljónagryfjunni og augljóst að honum líður bara nokkuð vel í grænu.
Báðir leikmenn sömdu til tveggja ára og því framtíðin björt í Njarðvíkinni ef líkum lætur.