Veigar snýr aftur í LjónagryfjunaPrenta

Körfubolti

Bakvörðurinn Veigar Páll Alexandersson mun leika með Njarðvíkingum það sem eftir lifir tímabils. Veigar þarf ekki að kynna fyrir ljónahjörðinni enda uppalinn Njarðvíkingur sem stundað hefur nám í Bandaríkjunum síðustu misseri.

Veigar er 22 ára gamall og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands. Áður en hann hélt vestur um haf var hann í talsverðu hlutverki hjá Njarðvíkingum og því mikill fengur að fá þennan öfluga leikmann aftur í Ljónagryfjuna.