Í gær 27. desember var haldin hin árlega uppskeruhátíð UMFN . Þetta kvöld er tileinkað öllum sem stunda íþróttir hjá UMFN. Ungmennafélagið verðlaunar alla þá sem hafa staðið sig framúrskarandi vel fyrir félagið og þykja fremst í sinni íþróttagrein. Hver deild valdi innbyrðis það íþróttafólk sem stóðu sig best í sinni grein á árinu og úr þeim var valið íþróttafólk UMFN 2022. Eins og oft áður voru margir framúrskarandi en aðeins þau tvö sem hver grein valdi eiga möguleika á því að vera valið íþróttafólk 2022. Við erum afar heppin að eiga mikið af framúrskarandi íþróttafólki í þeim greinum sem stundaðar eru hjá félaginu. Félagið stækkar með hverju ári þökk sé ykkur hvort sem þið eruð stuðningsmenn, sjálfboðaliðar, iðkendur, foreldrar eða þjálfarar þið spilið öll mikilvægt hlutverk og gerið félagið okkar betra.
Hér eru verðlaunahafarnir úr hverri grein
Fyrir Körfuknattleiksdeild:
Logi Gunnarsson
Vilborg Jónsdóttir
Vilborg er stödd erlendis, Vala móðir hennar tók við verðlaunum fyrir hennar hönd.
Fyrir Glímudeild:
Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
Jóhannes Reykddal Pálsson
Fyrir Sunddeild:
Katla María Brynjarsdóttir
Fannar Snævar Hauksson
Fyrir Knattspyrnudeild:
Marc McAusland
Fyrir Þríþrautardeild
Jóna Helena Bjarnadóttir
Jóna Helena komst ekki og mun taka við verðlaununum við fyrsta tækifæri.
Fyrir Kraftlyftingardeild MASSI:
Elsa Pálsdóttir
Benedikt Björnsson
Fyrir Ólympískar lyftingar MASSI:
Katla Björk Ketilsdóttir
Emil Ragnar Ægisson
Íþróttafólk UMFN árið 2022
Vilborg Jónsdóttir
Fannar Snævar Hauksson
UMFN óskar öllu okkar íþróttafólki til hamingju með góðan árangur á árinu.
Gleðilega hátíð og farsælt komandi ár.